Svívirða Samfylkingarinnar
Ummæli Össurar Skarphéðinssonar fyrr í vikunni, um að Samfylkingin og Vinstrihreyfingin-grænt framboð væru það líkir flokkar að þeir gætu farið undir eina sæng, eru svívirðileg.
Þveröfug þróun hefur átt sér stað undanfarin ár og flokkarnir verða ólíkari í stefnumótun sinni með degi hverjum. Nú hefur verið rætt talsvert um ummæli Össurar í fjölmiðlum og einkennist umræðan af því að draga upp á yfirborðið málefni sem VG leggja talsverða áherslu á, til að skýra hversu ólíkir flokkarnir eru, t.d. andúð á veru hersins, aðild Íslands að NATO, Kárahnjúkavirkjun, mótmæli við stríðinu í Írak o.sfrv. Þó þessi mál séu auðvitað mikilvægari en margt annað, þá er svo miklu miklu meira sem að baki liggur fjarlægð flokkanna.
Það brýnasta, að mínu mati, er að Samfylkingin styður einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Hvers konar firra er það? Hvað gerðist eiginlega í þessum flokki þegar Alþýðubandalagið söng sitt síðasta? Hvað varð um hugsjónarmanninn Össur sem borinn var út af Alþingi á sínum yngri árum?
Samfylkingin er einfaldlega að færa sig meir og meir í átt að miðju, og jafnvel hægra megin við miðju. Stefna VG í heilbrigðismálum er allt önnur. Flokkurinn leggur ríka áherslu á að veita góða og stöðuga fjárveitingu til heilbrigðisgeirans, og að hann eigi að vera ríkisrekinn. Einkavæðing (eða einkarekstur) bjargar engu innan heilbrigðisstofnana. Það mun einfaldlega leiða af sér misskiptingu og misræmi í þjónustu við sjúklinga, og í hnotskurn myndu ríkari heilsugæslustöðvar kaupa besta fagfólkið á meðan aðrar yrðu undir, og já, hinir efnameiri munu hafa kost á betri þjónustu en þeir efnaminni. Einkavæðing eða einkarekstur á heilbrigðisstofnunum er allt annars eðlis heldur en á matvöruverslunum. Þetta snýst um almannaheill en ekki einhver markaðslögmál. Mál sem þessi, sem og önnur, er það sem skilur flokkana að. Helst ber að nefna stefnu VG í umhverfisvernd og ólíkar skoðanir um Evrópusambandið. Samfylkingin vill að Ísland gangist undir það auðmagnsapparat og möppudýrasvall sem á sér stað í Brüssel. Stefna VG er þveröfug.
