R-listinn er tæki, ekki óargadýr
Í tilefni af ályktun stjórnar UVG í Reykjavík vil ég velta upp hugleiðingum um tilgang og tækifæri sem felast í sameiginlegu félagshyggjuframboði í Reykjavík. Við, vinstri græn, höfum sterkari rödd í meirihluta í nafni R-lista en ein í minnihluta. Ég hef ekki heyrt nein málefnarök gegn veru okkar í R-listanum. Einu rökin eru ?helvítis kratarnir? og ?spillta framsókn? rökin sem standast að mínu mati ekki nánari skoðun
Vissulega má benda á margt sem betur hefði mátt fara í valdatíð R-listans en það er ekki vegna einhverra eðlislægra galla sem slíkt framboð hefur óhjákvæmilega. Ef R-listinn klúðrar þá getum við engum nema sjálfum okkur um kennt. Vissulega þarf að skýra verklagsreglur og málefnagrundvöll samstarfsins til að auðvelda okkar borgarfulltrúum að standa í lappirnar þegar hinir flokkarnir vilja koma í gegn málum sem ekki hugnast vinstri grænum.
Svo verðum við líka að muna eftir því sem vel hefur farið, þeim fjölmörgu góðu málum sem félagshyggjuframboð þriggja flokka í nafni R-lista hefur komið í gegn. Skemmst er að minnast áforma um gjaldfrjálsan leikskóla sem sannarlega er vinstri grænt mál og mikill sigur fyrir okkar málstað. Endurskipulagning almenningssamgangna, Þórólfsmálið, einkavæðingaráform sem við höfum kæft í fæðingu og svo framvegis. Með öðrum orðum, við höfum ráðið því sem við höfum viljað ráða ? auðvitað með því að gera samstarfsflokkum okkar grein fyrir því að við kvittum ekki undir hvað sem er og stöndum fast á okkar grundvallarskoðunum.
