Ung vinstri græn
Pistlar

12.4.2005 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Ljót saga utan af landi...

Það eru til alls konar furðulegar mýtur í samfélaginu. Ein af þeim undarlegri er að álver séu frelsandi bjargvættir og lausn á öllum okkar vandamálum. Þetta sannaðist rækilega fyrir mér þegar ég fór á opinn fund um stóriðjumál á Norðurlandi, á Akureyri um síðustu mánaðarmót. Þar kynnti iðnaðarráðherra niðurstöður könnunar um aftstöðu íbúa Eyjafjarðarsvæðisins til stóriðju á Norðurlandi. Sú staðreynd að stuðningur við stóriðju á Eyjafjarðarsvæðinu meðal íbúa þar er ekki meira en 51 %, hefur valdið mikillri gremju meðal stuðningsmanna álvers í Eyjafirði. Nú véfengja þeir niðurstöður könnuninnar og segja orðalag könnuninnar vera villandi. Þess á milli grátbiðja þeir iðnaðarráðherra um álver í Eyjafjörð, þó að trauðla sé hægt að finna óheppilegri stað á landinu fyrir álver, sökum landlegu og blíðviðris. Þeir sem gera sér grein fyrir því að ef álver rís á Norðurlandi muni það líklega verða á Húsavík, spyrja hvort ekki sé bara hægt að reisa tvö álver? Sumir láta sig meira segja í fullri alvöru dreyma um þrjú! Þetta er að verða keimlíkt gullæðinu í Norður-Ameríku forðum daga. En í stað þess að ungir og kappsamir menn leggi allt í sölurnar til að freista gæfunnar og leita að gulli, leggja örvæntingarfull sveitafélög sjálfa náttúru landsins í sölurnar í álæðinu mikla, og trúa því í blindni að ekkert annað geti bjargað þeim frá atvinnuleysi og fólksfækkun, sannarlega verstu óvinum landsbyggðarinnar.

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica