Síminn
Nú eru það rétt um hundrað ár síðan símalínur voru lagðar hér á landi. Þar með upphófst draumur þjóðarinnar um sölu Símans fyrir sjúkrahús.
Á upphafstíma þessa ævintýris var gerður samningur við danskt símafyrirtæki er hafði einkarétt á utanlandssímtölum, þetta fyrirtæki stórgræddi á meðan þessari einokun stóð. Vafalaust hefur þessi símasamningur verið sá besti er símafyrirtæki hefur nokkurn tímann fengið. Til að halda utan um símamálin hér á Íslandi var komið á fót stofnunni Póstur og sími. Með tíð og tíma var símalínum komið vítt og breitt um landið, fyrst á einstök svæði en á endanum í hvert hús. Allir símreikningar voru hugsaðir til að halda uppi þessari stofnun og byggja hana upp til að geta orðið stöndugt fyrirtæki sem einn daginn væri hægt að einkavæða.
