Fljúgum burt með skúrana
Af hverju eru börn látin sækja skóla í vinnuskúrum? Þegar ný hverfi eru að byggjast upp eru skólamál leyst með vinnuskúrum. Svo loksins kemur glæsibygging sem dugar í nokkur ár og þá koma skúrarnir aftur meðan beðið er eftir glæsiviðbyggingu. Háleitar hugmyndir um skólabyggingar verða að martröð íbúanna sem vilja húsnæði fyrir skóla barnanna sinna en ekki glæsibyggingar með flóknum arkitektúr og glerhýsi. Endalaust langan tíma tekur að byggja skóla. Sjálfstæðismenn og Reykjavíkurlistinn eru báðir sekir um þessi vinnubrögð, þetta hefur alltaf verið svona. Óánægjan með þessi slóðavinnubrögð hafa einnig verið til staðar lengi. Hvers vegna er þessu þá ekki breytt? Hvað stendur í vegi fyrir því að gera ódýrar einfaldar skólabyggingar og dúndra þeim upp? Fólk vill fyrst og fremst góða kennslu en ekki fokdýrar skrautbyggingar.
Í Grafarholti var byggður einn leikskóli sem rúmar ekki helminginn af börnunum þar. Í haust á að taka í notkun skólahúsnæði hverfisins, ætli það sé 1.áfangi? Hvenær ætli hann fyllist? Miðað við fyrri reynslu verður það fljótlega og síðan tekur 10 ár að fá að byggja við skólann. Á meðan að Ingunnarskóli í Grafarholti er að sprengja utan af sér eru skúrarnir fluttir í Norðlingaholtið. Síðan verða þeir líklega fluttir til baka í Grafarholtið áður en viðbygging er byggð og síðan koll af kolli. Að byggja tugþúsunda hverfi upp áður en það er búið að ganga frá grunnskólum og leikskólum er hreinlega fáránlegt.
