Ung vinstri græn
Pistlar

1.4.2005 Kári Páll Óskarsson

Fátækt

Maður er nefndur Jeffrey D. Sachs. Hann er hagfræðingur og stýrir Aldamótaverkefni Sameinuðu Þjóðanna, sem vinnur að því að fá auðug ríki heims til að verja 0.7% af vergri þjóðarframleiðslu sinni til þróunaraðstoðar. Út var að koma áhugaverð bók eftir hann, sem heitir hvorki meira né minna en ?The End of Poverty?.

Skrif hans eru að mörgu leyti fræðandi. Tölfræði hans er sláandi. 1.1 milljarður manna býr við svokallaða ?extreme poverty?, sem þýðir að tekjur þessa fólks eru minni en sem nemur einum dollara á dag.Við erum að tala um fólk sem þjáist af krónískri vannæringu, getur ekki fengið heilsugæslu, skortir hreint drykkjarvatn, býr í kofum sem skýla því ekki fyrir veðri og vindum, á ekki grundvallarfatnað eins og skó, getur ekki keypt áburð til að rækta landskikana sína, hefur ekki efni á flugnanetum til að hindra útbreiðslu malaríu, eldar með kúadellu eða borðar hreinlega hráan mat því það hefur ekki efni á nokkrum sprekum í eldivið, o.s. frv. Sem sagt: það er allt í steik hjá því. Nærri helmingur mannkyns býr við mis-slæma fátækt, og bilið milli ríkra og fátækra breikkar sífellt meir. 8 milljónir manna deyja úr fátækt árlega, um 22000 á dag. Á hverjum degi gætu dagblöð sagt svona frá: ?Í gær fórust yfir 20000 manns úr fátækt?.

Kári Páll Óskarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica