Ung vinstri græn
Pistlar

31.3.2005 Skúli Jón Kristinsson

Hvaða framtíð viljum við búa börnunum okkar?

Þann 1. mars síðastliðinn var kynnt skýrsla Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna (UNICEF), um fátækt barna í iðnríkjum heimsins. Í rannsókn sem gerð var af Innocenti rannsóknarmiðstöðinni í Flórens, voru kjör barna í 24 aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD skoðuð, en samkvæmt niðurstöðunum hefur fátækt barna í iðnríkjum heimsins vaxið nokkuð síðan í upphafi tíunda áratugs síðustu aldar. Með öðrum orðum þá fer hlutfall þeirra barna sem alast upp í fátækt vaxandi í sautján ríkjum af þeim 24 sem rannsóknin náði til. Viðmið UNICEF, í skilgreiningu sinni á fátækt við gerð þessarar rannsóknar, eru þau að ef framfærslutekjur einstaklings eru meira en helmingi lægri en meðaltekjur í viðkomandi samfélagi, býr viðkomandi við fátækt. Norðurlöndin standa sig einna best í þessum efnum samkvæmt skýrslunni og tróna þar á toppnum Danmörk og Finnland, þar sem hlutfall barna sem lifa undir fátæktarmörkum er innan við þrjú prósent. Rannsóknin tók ekki til litla Íslands sökum smæðar okkar og fámennis. Talsmenn stofnunarinnar telja okkur þó vera á svipuðu róli og nágrannaþjóðir okkar. Þau iðnríki þar sem fátækt barna er hins vegar hvað víðtækust eru aftur á móti Bandaríkin og Mexíkó, en þar lifir rúmlega fimmtungur barna undir fátæktarmörkum.

Skúli Jón Kristinsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica