Þröngsýni á ÞUF
Helgina 11. til 13. mars tóku fimm fulltrúar frá UVG þátt í Þingi unga fólksins ásamt fulltrúum hinna ungliðahreyfinga landsins. Er það mat undirritaðrar að þingið hafi tekist vel að mestu leyti og þakkar hinum fulltrúunum gott samstarf á hinum ýmsu sviðum. Þó vekur furðu að ekki hafi náðst samstaða um nokkrar ályktanir sem UVG lagði fram í upphafi þingsins. Ber þar til dæmis að nefna frábæra ályktun um eflingu heilsugæslunnar sem fulltrúar telja sig fullvissa um að einungis hafi verið hafnað sökum vanþekkingar og fordóma.
Samstaða náðist um fyrstu tvær setningar ályktunarinnar, en upphafleg útgáfa frá UVG hljóðar svona: ?Þing unga fólksins leggur ríka áherslu á eflingu almennrar heilsugæslu í landinu. Eins og staðan er í dag getur biðtími eftir þjónustu á heilsugæslustöðvum verið ansi langur og læknar hafa lítinn tíma til þess að veita sjúklingunum það aðhald sem þeir þurfa. Ástæða þessa er m.a. ekki næg fjárveiting til heilsugæslunnar. Meiri tími og meira aðhald með hverjum sjúklingi eykur líkurnar á því að fólk sé greint rétt og fyrr, en það myndi kosta heilbrigðiskerfið minni sjúkrahúskostnað, sérfræðiþjónustu og lyfjakostnað. Einnig mun það koma sér til góða í tryggingakerfinu, t.a.m. í tengslum við örorkulífeyri og sjúkradagpeninga. Því skorar Þing unga fólksins á stjórnvöld að efla heilsugæslustöðvarnar í landinu með auknum fjárveitingum. Með því mun þjónusta heilsugæslustöðva aukast, sjúklingar fá meira og betra aðhald og sparnaðurinn verður meiri.?
