Ung vinstri græn
Pistlar

14.3.2005 Finnur Dellsén

Hugmyndafræðilegur ágreiningur

Hvað veldur því að tveir áhugamenn um stjórnmál, róttæklingurinn og frjálshyggjumaðurinn, sem rökræða um hugsjónir sínar kvöld eftir kvöld, komast ekki að neinni niðurstöðu? Báðir hljóta að trúa því að þeir hafi almannahag að leiðarljósi, þótt með mismunandi hætti sé. Þannig segja boðberar frjálshyggjunnar að frjálshyggjan sé ekki aðeins góð fyrir þá allra ríkustu, heldur líka fyrir þá sem minna hafa milli handanna. Frjálshyggjumaðurinn telur sig því hafa yfir að ráða hugmyndafræði sem komi öllum til góða.

Róttæklingurinn er ósammála. Hann telur að vandamál heimsins felist í misskiptingu og fátækt. Hann vill bæta hag þeirra. En munurinn á róttæklingnum og frjálshyggjumanninum er að sá fyrrnefndi telur sig ekki leysa vandamál allra. Hann telur sig hins vegar vera að leysa vandamál þeirra sem minnst hafa milli handanna, jafnvel þótt það sé á kostnað þeirra sem mest eiga.

Finnur Dellsén

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica