Ung vinstri græn
Pistlar

10.3.2005 Jón Bjarki Magnússon

Ríkisrekin trú?

Í samfélagi þar sem raunverulegt trúfrelsi ríkir, þar er engin ríkistrú. Í samfélagi þar sem virkilegt trúfrelsi ríkir, þar hafa þegnarnir það algjörlega á sínu eigin valdi hverju þeir trúa og hverju ekki. Í samfélagi þar sem alvöru trúfrelsi ríkir, þar á skattpeningum borgaranna ekki að vera eytt í eina ríkistrú á meðan aðrir trúarhópar þurfa að treysta á baukinn.

Það er ekki hægt að búa í samfélagi þar sem því er óspart haldið fram að allir trúhópar sitji við sama borð á meðan þjóðkirkjan, í krafti þegjandi meirihluta, heldur uppi ríkisreknum kirkjum. Það sér það hver maður að jafnrétti ríkir ekki á milli trúhópa á Íslandi og því þarf að breyta. Á meðan þjóðkirkjan er eins yfirgnæfandi og hún er í dag þá komast litlu Búddarnir og Hindúarnir ekkert að, rödd þeirra týnist.

Jón Bjarki Magnússon

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica