Ung vinstri græn
Pistlar

2.3.2005 Kári Páll Óskarsson

Afnám trúboðs í skólum

Mér dauðbrá yfir sjónvarpsfréttunum um daginn. Svo bölvaði ég eins hressilega og mér var unnt. Ástæðan var þessi:

Í grunnskóla nokkrum er hver kennslustund hafin á bæn. Skólastýran segist ekkert athugavert sjá við það, vegna þess að flestir nemendurnir séu kristnir. Flestir. Jæja, þá hlýtur það að vera gott og blessað, ekki satt? Það er einmitt þannig sem skoðanakúgun virkar! það er meirihluti, það er minnihluti eða -hlutar, og svo reynir meirihlutinn að þröngva hugmyndafræði upp á hina! Sérstaklega er skoðanakúgun svívirðileg ef hún fer fram í skjóli opinberra stofnana eins og skóla.

Kári Páll Óskarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica