Ung vinstri græn
Pistlar

3.2.2005 Kári Páll Óskarsson

Lengi býr að fyrstu gerð

DV birti nýlega stutta greinargerð um hvernig KB banki er að standa sig í gróða, með fyrirsögninni ?500 kall á sekúndu? eða eitthvað í þá áttina. Í kjölfar þess birti blaðið svo stutta hugleiðingu um hvað bankinn gæti gefið þjóðinni til að fyrirbyggja öfund í sinn garð, á meðan hún vendist því að henni tilheyra menn sem eru svo ríkir að það hljómar einsog í ævintýri. Tillögur blaðsins voru misgáfulegar, sumar hafa eflaust verið mjög fyndnar eftir langa setu á Næstabar, en þarna rataði þó inn hugmyndin um gjaldfrjálsa leikskóla.

Það er virkilega fyndið, næstum jafnfyndið og fókusfréttin um sálarrannsóknafélag handrukkara, handaheimahandrukk.is.

Kári Páll Óskarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica