Efasemdir um dauðarefsingar
Miklar umræður hafa sprottið upp um möguleikann á afnámi dauðarefsingar í Kína í kjölfar alþjóðlegs málþings um dauðarefsingar sem haldið var í Xiangtan í Hunan héraði í seinasta mánuði. Lögfræðingar á ráðstefnunni héldu því fram að Kínverjar þyrfti að draga úr dauðarefsingum þegar þær brytu í bága við alþjóðlegan sáttmála um borgaraleg og pólitísk réttindi. Þeir sögðu einnig að afnám dauðarefsingarinnar væri skref í átt að siðmenntuðu samfélagi. Deildarforseti lagadeildar Xiangtan háskóla og einn helsti talsmaður umbóta á dauðarefsingu, prófessor Qiu Xinglong, segir að svo lengi sem lögin viðurkenna glæpamenn sem mannverur, eigi þeir rétt til lífs og hvorki ríkið né önnur lög megi taka það frelsi frá þeim einstaklingi.
