Pistlar
Þjóðsögur
Hver ég er? Ertu viss um að þú viljir vita það? Saga mín er ekki beint fyrir viðkvæma. Ef einhver hefur sagt þér að það væri hugljúf saga... ef einhver hefur sagt þér að ég væri bara venjuleg stelpa, ekki hið minnsta öðruvísi... Þá hefur einhverjum aldeilis tekist að ljúga að þér.
Ég fell kannski inn í hópinn, en ef veslings grunlausu börnin sem ég mæti útá götu vissu hvað ég væri...Þau myndu frekar mæta Grýlu gömlu í myrkri en mér um hábjartan dag. Því ég er ein af þeim... Strákar, takið til fótanna, og mæður, sendið börnin ekki út nema með vígt vatn og auka par af vettlingum! Hver ég er?
Ég er femínisti.
Steinunn Rögnvaldsdóttir
