Ung vinstri græn
Pistlar

25.1.2005 Skúli Jón Kristinsson

Ríkisreknar yfirstéttir og hégómi

Í kjölfar lýðræðisbyltingar þeirrar er átti sér stað í Evrópu á ofanverðri 19. öld var komist að þeirri fáránlegu niðurstöðu í mörgum ríkjum að hinir gömlu einvaldar skyldu missa völd sín en halda stöðu sinni. Enn þann dag í dag er það víða þannig að niðjum gamalla einvalda er haldið uppi af almannaféi, rétt eins og fyrir daga almenns kosningaréttar. Munurinn er sá að þessar ríkisreknu yfirstéttafjölskyldur eru beinlínis hugsaðar sem skraut nú á dögum en ekki óskeikulir valdhafar. Lúxuslífernið, allur íburðurinn og prjálið, svo ekki sé minnst á allar snobbveislurnar kosta sitt. Í slíkt hjóm og hégóma þykir mörgum sjálfsagt og eðlilegt að eyða almannaféi. Það er fyrir löngu kominn tími á að skrefið sé stigið til fulls og konungdæmi verði afnumið fyrir fullt og allt í öllum ríkjum heimsins. Við eigum að vera kominn lengra en þetta.

Skúli Jón Kristinsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica