Kosningar?
Sirkus Geira smart heldur áfram og nú á að fara að kjósa í Írak. Eins og allir vita eru kosningar birtingarmynd hins fullkomna lýðræðis. Frelsið mun svoleiðis flæða út um eyrun á kampakátum Írökum þar sem þeir rölta prúðbúnir út á kjörstað að greiða sitt atkvæði. Reyndar er ekki ljóst hverjum þeir munu greiða atkvæði þar sem ekki hefur þótt hættandi á að gefa upp nöfn frambjóðenda en það skiptir að sjálfsögðu ekki máli. Það sem skiptir máli er ekki hver verður kosinn heldur að það verði kosið, landinu verður að stjórnar áfram af miðaldra hvítum karlmönnum frá Ameríku.
Nei kosningarnar þurfa að fara fram til að sýna meinfýsihlakkandi úrtölu aftuhaldskommatittspakki á Vesturlöndum að í Írak sé allt í orden. Reyndar eru einhverjir leiðndaskarfar að þusa um kosningarnar verði ekki bara ólýðræðislegar þar sem íbúum þriggja héraða er hreinlega bannað að taka þátt í kosningunum en erlendum ríkisborgurum af Íröskum ættum er leyft að kjósa heldur einnig ólöglegar því samkvæmt Vínarsáttmálanum má hernámsþjóð ekki breyta samsetningu þjóðfélagsins, félagslega, menningarlega, menntunarlega eða stjórnmálalega á herteknum svæðum. En það skiptir engu máli, framkvæmd, niðurstaða og lögmæti kosninganna er algert aukaatriði, bara að þær fari fram. Svo er það bara einhvað leiðindahyski sem heldur þessu fram og enginn nennir að hlusta á það.
Jább stríðið er búið, þó hernaðurinn hafi reyndar aldrei verið meiri en síðan það kláraðist, og þegar kosningarnar verða búnar verður verkefninu lokið. Írak hefur verið frelsað í tætlur og tímabært að snúa sér að því að frelsa næsta olíuauðugu arabaland. Kallinn í skothelda glerkassanum sagði að heimurinn skildi verða frelsaður og það mun hann gera með púðri og blýi. Það eru eingöngu armir þrælar sem halda því fram að betra sé að vera lifandi en frjáls.
