Varanlega umhverfisvernd í varanlega stjórnarskrá
Breytingar á stjórnarskránni koma til með að verða mikið til umræðu á næstu árum. Eins og hún horfir við núna lítur út fyrir að mest ríði á að ræða málskotsrétt forseta Íslands. Líklega er það mjög eðlilegt, enda um að ræða síðasta stóra mál sem mikið var rætt um í samfélaginu og snýr beint að stjórnarskránni. En við megum ekki vera fljót að gleyma, sérstaklega ekki í vinnu sem miðar að því að gera eitthvað varanlegt, eins og stjórnarskrárbreyting á að vera.
Til að skapa eitthvað varanlegt þarf að ríkja sátt. Til að leggja upp í alvöru sáttaferli þurfum við að horfa vítt og breytt yfir sviðið, á önnur þrætumál sem hafa valdið uppþoti og klofningi í samfélaginu. Kannski er mögulegt að koma í veg fyrir endurteknar þrætur með því að víkka vernd stjórnarskrárinnar til fleiri þátta.
