Hvaða jafnrétti?
Greinin birtist áður í Morgunpóstinum, málgagni VG í RVK, þann 13.janúar síðastliðinn.
Ísland er jafnréttisþjóðfélag. Á Íslandi ríkir jafnrétti, eða svo skilst mér. Við höfum meira að segja jafnréttislög sem stuðla að jafnari niðurröðun kynjanna í hvert starf. Það geta ekki allir sagt!
Þorri íslendinga telur jafnréttisbaráttunni lokið. Allir íslendingar fæðast jafnréttháir, án tillits til litarhafts, menningar eða trúar. Það er börnum kennt í skóla. Þökk sé vorum ginnheilögu frelsishetjum, Jóni Sigurðssyni og hans Fjölniskammarötum, höfum við stjórnarskrá. Það er börnum líka kennt í skóla. Allt er í himnalagi. Bríet Bjarnhéðins stóð sig í stykkinu, við þurfum engar áhyggjur að hafa og það má augljóst heita af fögrum orðum vorra frómu fyrirmanna, að á Íslandi sé allt í sóma; við höfum siglt hinn lygna jafnréttissjó til hins fyrirheitna draumalands Íslands.
