Ung vinstri græn
Pistlar

7.12.2004 Einar Steinn Valgarðsson

Gengið til góðs? Þitt er valið

Um daginn hélt Þjóðarhreyfingin fund sem ég komst því miður ekki á. Megin inntak hans var að safna fé til að birta grein í New York Times þar sem heimsbyggðin gæti séð raunverulega afstöðu íslensku þjóðarinnar til stríðsins í Írak. Greinina má finna á www.thjodarhreyfingin.is. Þjóðarhreyfingin mótmælir aðferð utanríkisráðherra og forsætisráðherra er þeir lýstu stuðningi við stríð í Írak án þess að bera málið undir Alþingi og ríkisstjórn og heimfærðu vilja sinn upp á þjóðina. Hér er lýðræði virt að vettugi og brotið á stjórnarskránni. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er mótfallinn stríði en nú eru hendur okkar blóði drifnar, með stuðningnum erum við samsek og berum ábyrgð á fjöldamorðum, niðurlægingu og kúgun saklausra borgara, manna, kvenna og barna. Með stuðningnum lýsir ríkisstjórn einnig velþóknun á að alþjóðalög og almenn mannréttindi séu brotin.

Hæstvirtur utanríkisráðherra er ávallt jafn smekklegur, svo próper og indæll séntilmaður. Hann kallar Samfylkinguna ?Afturhaldskommatittsflokk?. Hroki og ósvífni hæstvirts ráðherra virðist fá takmörk sett. Hann hefur einnig talað um ?meinfýsishlakkandi úrtölumenn? og á þá við... Alþingi? Meirihluta þjóðarinnar? Er það svona sem hann hugsar um þjóðina sem hann á að þjóna? Valdið kemur frá fólkinu. Við erum ekki þegnar, heldur úthlutar þjóðin valdinu til ráðamanna og veitir þeim umboð að vinna í þágu þjóðarinnar.

Einar Steinn Valgarðsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica