Ung vinstri græn
Pistlar

1.12.2004 Finnur Dellsén

Skotgrafahugsjónin

Á síðustu misserum hefur komið fram sú nýstárlega (en jafnframt geysivinsæla) kenning að til séu aðeins tvenns konar skoðanir á sama hlutnum. Og algengur fylgifiskur þessa er að samþykki maður aðra af þessum skoðunum, þá jafngildi það stríðsyfirlýsingu á alla þá sem eru á hinni skoðuninni og jafnvel að allar skoðanir þeirri hljóti þar með að vera rangar.

Þessa kenningu eða hugsjón má kalla tveggja-hliða-kenninguna eða skotgrafarhugsjónina. Uppruna kenningarinnar má að öllum líkindum rekja til George W. Bush Bandaríkjaforseta sem setti hana fram í frægri ræðu og orðaði hana á þann veg að ?þeir sem ekki eru með okkur, eru á móti okkur?. Þannig fékkst sú lífseiga niðurstaða að þeir sem ekki styddu stríðið í Afghanistan og Írak, hlytu að styðja hryðjuverkamennina sem stóðu á bak við árásina á tvíburaturnana þann 11. september.

Finnur Dellsén

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica