Lögleiðing fíkniefna ? I. hluti
Birtist áður á Múrnum þann 28.nóvember.
Samfara gjörbreyttu landslagi undirheimanna hefur umræðan um fíkniefni tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Fyrir u.þ.b. tveimur árum voru stofnuð samtök um endurlögleiðingu kannabisefna og stafræktu þau einnig vef þar sem þau birtu misgóðar upplýsingar um kannabisefni. Reyndu þessi samtök að breyta orðræðunni um kannabisefnin og héldu því fram að kannabisefnin væru alls ekki eins slæm og margir læknar og sérfræðingar teldu. Nú hafa þessi samtök legið niðri um nokkurt skeið og hafa hætt starfrækslu vefjarins. Enn eru þó til menn sem halda þessari umræðu enn á lofti en þó með aðeins öðrum áherslum. Þetta eru þeir sömu og hafa gengisfellt hugtakið ?frelsi?; hinir svo kölluðu frjálshyggjumenn.
Fyrir nokkru skrifar Steinar Ólafsson grein á vef ungra frjálshyggjumanna þar sem hann heldur því blákalt fram að lögleiðing fíkniefna, þá ekki einungis kannabisefna, sé af hinu góða og komi samfélaginu mun betur en núverandi löggjöf. Segir Steinar m.a. í grein sinni:
?Þrátt fyrir virka löggæslu og þunga dóma hefur glæpum fjölgað, aukin harka færst í ofbeldisverk og fólskulegar líkamsárásir og horfum við jafnvel fram á manndráp. Bankarán hafa heldur aldrei verið jafn tíð og innbrot eru algengari en áður. Það er líka óhætt að fullyrða að heilu borgarhlutar í mörgum bandarískum stórborgum séu á leiðinni í vaskinn beinlínis þrátt fyrir viðleitni Bandaríkjamanna til að uppræta vandann??
