Ung vinstri græn
Pistlar

26.11.2004

Hreintrúaðir í Heimdalli

Kópavogsbúinn Einar Þorsteinsson ritar grein á vef ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík um stríð gegn hryðjuverkum og mikilvægi þess. Byrjar greinarhöfundur að slá um sig og nefnir bandarískan fræðimann sem hefur verið sakaður um að vera öfgaþjóðernisinni, rasisti og stríðsæsingamaður á nafn, Samuel P. Huntington sem hugmyndafræðing að hans skapi. Þegar betur er að gáð er ljóst að greinarhöfundur hefur greinilega ekki hugsað orð sín til enda. Í einni og aðeins einni málsgrein nefnir hann kristni sem eina af ástæðum stríðs þess sem nú er háð um heim allan undir formerkjunum stríð gegn hryðjuverkum. Þessi málsgrein er í byrjun greinarinnar og það sem eftir lifir rekur hann hvað kommúnismi/fasismi og öfgatrúarmennirnir múslimar séu með líkar stefnur. Einar nefnir sí og æ ofsatrúarsinna og öfgatrúarsinna sem illa menn og þar á hann einungis við múslima. Hefur Einar aldrei horft á Omega? Eða er hann dyggasti stuðningsmaður þeirrrar sjónvarpsstöðvar?

Furðulegt er að fylgjast með áróðrinum sem gengur í gegnum greinina þar sem hryðjuverkamennirnir eru óvinirnir sem halda fólki í gíslingu og kristnar Vesturlandaþjóðir hafi það hlutverk að frelsa þetta aumingjans fólki. Víst er það rétt að mannréttindi eru ekki höfð að leiðarljósi í mörgum af múslimskum ríkjum en hafa bera í huga að mannréttindi fást ekki með stríði. Mannréttindi eru þverbrotin í stríðsrekstrinum títtnefnda gegn hryðjuverkum, má þar nefna Guantanomo, Abu Ghraib, nýjar áætlanir bandaríkjastjórnar um skerðingu mannréttinda bandaríkjamanna í nafni stríðsins o.s.frv..

Ritstjórn

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica