Enn önnur ástæða til að hætta R-lista samstarfi
Hækka á leikskólagjöld ef annað foreldri er í námi. Hækkunin nemur 42% eða tæplega 10.000 krónum á mánuði fyrir eitt barn. Forsvarsmenn Leikskóla Reykjavíkur bera það fyrir sig að hækkunin sé vegna þess að námsmenn séu betur staddir heldur en þeir voru þegar núverandi gjaldskrá var ákveðin. Þeir segja að það sé sérstaklega með tilliti til afnáms tekjutengingar maka hjá LÍN því að lág leikskólagjöld hafi verið liður í því að koma til móts við tekjutengingu námslána. Það er ekki einu sinni víst að allir séu í námi sem er lánshæft, eins og þeir sem eru í einhvers konar framhaldsskólanámi. Er gert ráð fyrir því að makar námsmanna séu með háskólamenntun og í vel launaðri vinnu?
Hver hefur fengið kjarabót um heilar 10.000 krónur á mánuði frá LÍN í einu lagi? Er ómögulegt að námsmenn geti fengið kjarabætur? Er það lögmál að námsmenn eigi alltaf að vera á kúpunni? Hvers vegna er fyrst ráðist á námsmenn? Þetta virðist svo óréttlát hækkun sérstaklega í ljósi þess að forsvarsmenn Leikskóla Reykjavíkur segja að hækkunin sé ekki til að mæta auknum útgjöldum, þvert á móti hafi hækkunin og leikskólagjöldin í raun lítil áhrif á rekstrargrundvöll leikskólanna. Til hvers er þá verið að auka útgjaldabyrði námsmanna? Til einskis? Bara?
