Hvaða gaurar?
Á morgnana í Háskólabíó getur manni gefist gott tóm til að hlusta á samræður annarra. Slíkar samræður geta verið athyglisvert innlegg í orðræðu hversdagsins eins og ég fékk að reyna um daginn. Þá voru strákar fyrir aftan mig að býsnast yfir því að einhverjir hefðu fengið tíu í prófinu sem við vorum í. ?Mér finnst að svona gaurar ættu að gefa sig fram?, sagði einn þeirra.
Svona gaurar. Ekki svona fólk, svona nemendur, svona hálfvitar eða svona eitthvað annað orð. Kom honum ekki til hugar að stelpur gætu líka fengið tíu? Niðurstaða flestra er örugglega sú að hann hafi bara sagt þetta alveg óvart, í raun bara mismælt sig og örugglega leiðrétt ef honum hefði verið bent á þetta. Líklega var hann ekkert sérstaklega að tengja tíur við menn með typpi. Konur eru jú líka menn ? eða hvað? Eru konur þá líka gaurar?
Staða kvenna í samfélaginu kemur kannski berlegar í ljós í þessu óheppilega mismæli en í mörgum öðrum betur ígrunduðum orðum. Ef strákar í léttu morgunspjalli fyrir fyrirlestur eru ekkert að pæla í því að kvenkyns samnemendur þeirra geti fengið tíu á prófi hlýtur eitthvað alvarlegt að vera að. Ósjálfráða samasemmerkið sem virðist vera á milli karlkynsins og góðra einkunna í þeirra huga getur ekki bara endað þar.
Með því að heimfæra þetta mismæli á samfélagið í heild sinni er hægt að fullyrða að það sé ríkjandi tilfinning fólks að strákar séu líklegri en stelpur til að standa sig vel. En eins og óheppilega orðavali stráksins er forskot karlanna ekki gert með vilja til að mismuna. Mismununin er samt til staðar þótt auðvelt sé líta, eða eftir atvikum hlusta, framhjá henni.
Ómeðvitað forskot karlanna er því ekki eins og hvert annað óheppilegt mismæli sem er þar að auki dálítið pínlegt. Þótt mörgum finnist óþægilegt og kannski óþarft að fetta fingur út í svona smáatriði er hægt að segja að á meðan svona hugsunarháttur viðgengst eru konur ekki að keppa við karla á sömu forsendum. Á þessu forskoti verður því ekki unnið nema fólk megi tala um það og þannig reyna að leiðrétta það.
Þegar ég keppi um að fá góða einkunn vil ég að björninn sé unninn þegar ég fæ tíu. Að því loknu hef ég engan áhuga á því að takast á við aðra keppni sem ég get ekki unnið. Af því að ég er stelpa get ég ekki orðið ein af þessum gaurum.
