We've still got work to do.
Fyrir nokkrum dögum birti Al-Jazeera nýtt myndbrot af Osama Bin Laden þar sem hann nefndi nýjar hryðjuverkaárásir. Menn veltu vöngum um af hverju hann kysi að láta til sín heyra svona rétt fyrir Bandarísku forsetakosningarnar. Sumir spurðu hvort það gæti verið í þeim tilgangi að hræða Bandarísku þjóðina til að fylkja sér um foringja sinn. Síðan gengu Bandaríkjamenn að kjörborðinu og endurkusu sinn mann. Ekki veit ég það fyrir víst en mér kæmi ekki á óvart að þegar úrslitin voru lýðnum ljós hafi Osama dansað af kæti í hellisskútanum sínum eða hvar sem hann dvelst. Sækjast sér um líkir, fátt kætir öfgamenn meira en aðrir öfgamenn. Teljið bara hve oft Bush nefnir Guð í ræðum sínum.
Við vitum hvað gekk á síðustu fjögur árin. Næstu fjögur ár verða meira af því sama. Heimurinn heldur áfram að klofna. Bush og hans félagar munu halda áfram að rembast við að slökkva eld með eldi. Það sem kosið var yfir heimsbyggðina á þriðjudaginn er ávísun á meiri mengun, meiri þröngsýni í garð minnihlutahópa s.s. samkynhneigðra, meiri andstöðu við brýn baráttumál kvenna s.s. fóstureyðingar, meiri misskiptingu auðs í heiminum, meiri græðgi, meiri stríðsrekstur, meira trúarofstæki, meira hatur, meiri eymd.
George var að gefa henni Lauru sinni nýjan hvolp. Hún heitir Miss Beazley.
Kaldhæðnislegast af öllu er kannski sú staðreynd að siðferðismál færðu kúrekanum gullkálfinn. Sannkristnir Ohio-búar lögðu sitt lóð á vogarskálarnar til að þeirra sannkristni forseti færi hvergi. Sumir telja þessi kosningaúrslit siðferðislegt gjaldþrot kapítalismans, lýðræðisins, kristindómsins og Vesturlanda. Davíð Oddsson telur þessi úrslit góðan kost fyrir Íslendinga.
Hvaða Íslendingar eru það eiginlega? Sem Íslendingur vil ég taka fram að Davíð talar ekki fyrir mína hönd.
Vinstrimenn geta kannski týnt til eitt og annað til að hugga sig við. Bandarískir kjósendur eru misvel upplýstir. Kosningakerfið í USA er óáreiðanlegt. Í heiminum er til nóg valíum og önnur deyfilyf sem lyfjarisarnir framleiða og selja af sinni stöku góðmennsku. Það eru að koma jól. En einmitt þegar manni er skapi næst að segja ?OK, ég nenni þessu ekki?. Þið megið eiga þetta klúður, ég er farinn til Tijuana þá er einmitt mikilvægast að halda haus og gefa sér spark í rassinn. Þá er einmitt mikilvægast að halda sínu striki, halda áfram að tuða í öllum sem vilja hlusta og sérstaklega þeim sem ekki vilja hlusta. Einsog kúrekinn sagði sjálfur ?We've still got work to do?.
