Ung vinstri græn
Pistlar

5.11.2004 Dagur Snær Sævarsson

100.000 manns - fleiri lítrar af blóði

Samkvæmt fyrstu ítarlegu rannsókn sem gerð hefur verið á mannfalli í Írak síðan innrásin hófst má glögglega sjá að innrásarstríðið, sem Bush og aðrir staðfastir háðu, í Írak hefur dregið sæmilega stóran dilk á eftir sér. Um 100.000 manns hafa látist, flest fórnarlömb loftárasa hinna staðföstu.

Rannsóknin, sem gerð var í 33 hverfum í Írak, sýnir að ofbeldi er meginorsök dauðsfalla í Írak eftir innrásina. Það er heldur frábrugðið því sem áður var því hjartaáföll, heilablóðföll eða langvarandi veikindi voru meginorsökin áður en til innrásarinnar kom. Í dag, eftir meinta frelsun, hefur hættan á dauðsfalli vegna ofbeldis 58 faldast.

Rannsókninni var stýrt af Les Roberts frá Johns Hopkins Bloomberg School of Public Health í Baltimore. Fimm af þeim sex Írökum sem fóru á 988 heimili voru læknar og allir þeir sem komu nálægt rannsókninni lögðu líf sitt í hættu við að safna þessum upplýsingum, að því er kemur fram í skýrslu.

Ungbarnadauði jókst úr 29 upp í 57 dauðsföll af 1000 börnum sem fæddust lifandi, sem er þó ?eðlilegt? stríðsmynstur, því konur áttu erfitt með eða neituðu að fara á sjúkrahús.

Þrátt fyrir að 100.000 manns hafi látist beinlínis vegna stríðsins telja íslensk stjórnvöld ekki koma til greina að draga stuðning sinn til baka, en sá fjöldi jafnast á við alla íbúa í Reykjavík. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson eiga eftir að hafa þessa tölu á samviskunni það sem þeir eiga eftir ólifað. Eða eru þeir samviskulausir?

Og ekki batnar það með endanlegum tölum úr forsetakosningunum í Bandaríkjunum, því George W. Bush hefur verið lýstur sigurvegari kosninganna og því endurkjörinn sem forseti eins valdamesta ríkis heims. Það skal því ekki undra ef tala fallinna í heiminum vegna loftárása þeirra staðföstu, tvöfaldist eða þrefaldist næstu fjögur árin.

Dagur Snær Sævarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica