Nútíma þrælahald við Kárahnjúka?
Eins og flestum ætti nú að vera kunnugt þá reisir Landsvirkjun nú stærstu virkjun Íslandssögunnar við Kárahnjúka. Öllum ætti að vera ljós andstaða Vinstri-grænna við framkvæmdirnar á grundvelli náttúruverndarsjónarmiða en ekki verður farið út í þá sálma hér. Hér verður hinsvegar fjallað um kaup og kjör þeirra starfsmanna sem starfa á vegum ítalska verktakafyrirtækisins Impreglio við Kárahnjúka.
Starfsmenn eru af ýmsum þjóðernum, en stór hluti þeirra sem starfa nú við virkjunarframkvæmdir eru frá Portúgal, Póllandi og Kína. Þessir starfsmenn eru á vegum starfsmannaleiga sem gera út farandverkamenn um allan heim. Þeir eru margir ráðnir til að starfa hér í fimm og hálfan mánuð í senn og eiga á því tímabili einungis lögbundið frí á sunnudögum nema þeir sækist eftir aukavinnu sem sumir fá en aðrir ekki. Til samanburðar vinna íslenskir starfsmenn undirverktaka í tólf daga í senn og fá svo frí í fjóra.
Starfsöryggi þessara manna er lítið sem ekkert. Ef þeir eru með ?uppsteyt? þá hafa atvinnurekendurnir látið þá skrifa undir uppsagnarbréf sem er geymt í skúffu og dregið fram ef tilefni þykir til. Þá teljast þeir hafa rofið ráðningarsamning og eru sendir heim á eigin kostnað og þurfa þar að auki að borga undir þann starfsmann sem hingað kemur í þeirra stað.
Aðbúnaður er lélegur og ljóst að innlendir verkamenn myndu seint láta bjóða sér annað eins. Ef eitthvað bilar er gert við það hægt og illa. Allt er eins lélegt og illa búið og atvinnurekendur komast upp með. Íslensk vinnulöggjöf er virt að vettugi.
Það er grátlegt að Landsvirkjun og ríkisstjórnin sætti sig við að hér á landi viðgangist starfsemi sem stenst engan veginn íslenska vinnulöggjöf. Verkalýðshreyfingin, Landsvirkjun, Vinnumálastofnun, Félagsmálaráðuneytið og þeir aðrir aðilar sem hafa beinlínis með málið að gera hafa ekki staðið sig í stykkinu. Gerum skurk í þessum efnum. Látum þrælahaldarana ekki komast upp með að hafa hér réttindalausa verkamenn í vistarbandi.
