Ung vinstri græn
Pistlar

13.10.2004 Katrín Sif Oddgeirsdóttir

Áætlun eða hugsjón?

Það er margt sem má bæta umhverfis okkur, en samt státum við okkur af því að hafa eitt fegursta land í heimi. Svo er spurningin, hvernig förum við með þær auðlindir sem við höfum?

Með áætlun Staðardagskrár 21 mun hugsjón okkar allra breytast til hins betra og vernda það auðríki sem við búum í. Á heimsráðstefnunni sem haldin var í Rio árið 1992 var sett fram þróunaráætlun sem myndi byggja á sjálfbærri þróun, það er að segja framkvæmdaráætlun sem tæki til allra þátta umhverfis- og þróunarmála. Þessi umrædda áætlun fer þá leið að sveitarfélag setur fram áætlun um það hvaða leið það ætlar að fara til að ná þessum takmörkum, það er að segja sjálfbærri þróun á komandi árum og öldum.

Með sjálfbærri þróun þurfum við sem einstaklingar að breyta okkar hugsunum til hins betra, að mínu mati snýst þetta ekki einungis um áætlanir heldur náungann sem heild. Þetta er spurning um að breyta lífstíl og okkur sjálfum til að gera umhverfið sem í kringum okkur liggur, betra. Með flokkun úrgangs og breyttum hugsunum, skiptir þitt framtak öllu máli, eða eins og segir: ?margt smátt gerir eitt stórt?.

Aðaláhyggjuefnið er söfnun auðs á fárra hendur og er bilið milli ríkra og fátækra að aukast með ári hverju. Jöfnun auðs í heiminum er meginforsenda þess að verkefnið (Sd 21) skili raunhæfum árangri. Það er okkar hlutverk að rétta fram hjálparhönd og krefjast aðgerða gagnvart þessum hörmungum.

Með bættum hugsjónum og öflugum samtökum ættum við sem þjóð að geta lagt okkar af mörkum til þess að reyna að breyta ástandinu í heiminum til betri vegar.

Katrín Sif Oddgeirsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica