Ung vinstri græn
Pistlar

23.9.2004 Björn Reynir Halldórsson

Farið nú að semja!

Flestir viðurkenna að grunnskólakennarar hafa engin sérstök laun. Það ætti því að vera eðlilegt að kennarar vilji meiri laun fyrir það mikilvæga starf sem þeir vinna í þjóðfélaginu. En er eðlilegt að þeir þurfi að beita mesta neyðarúrræðinu, verkfalli?

Þegar kennararnir fara í verkfall er strax skotið á þá og sagt að þeir nenni ekki að vinna vinnu sína. Menn ættu frekar að vera þakklátir kennurum fyrir það starf sem þeir vinna venjulega. Þeir gera ýmislegt meira en að reikna dæmi, tala dönsku eða blaðra um orma í 40 mínútur. Kennararnir þurfa að vera hin styrka stoð nemenda. Þeir eiga að vera góðar fyrirmyndir, hjálpa nemendum að glíma við félagsleg vandamál og leiða þá á rétta braut. Auk þess þurfa þeir að halda uppi félagslífi nemenda og vinna mikla heimavinnu (semja próf, fara yfir verkefni o.s.frv.) til að nemendur læri eitthvað og komi vel undirbúnir í framhaldsskóla. Og fyrir allt þetta fá margir kennarar innan við 180.000 þó meðalgrunnlaun teljist 210.000-215.000.

Þegar verkfall skellur á er ekki gaman að vera í 10. bekk. Samræmd próf eru framundan og hver einasti tími er dýrmætur. Þess vegna er langt verkfall hræðilegt fyrir 10. bekkinga. Ekki bætir það heldur úr skák að sífellt erfiðara verður að komast í framhaldsskólana sem má að einhverju leyti rekja til skorts á fjármagni. Það er því mikilvægt að semja sem fyrst.

Bilið á milli deiluaðila er allt of mikið. Þess vegna vil ég skora á þá að leggja harðar að sér við að semja og vera umburðarlyndari í garð hvors annars til að 45.000 nemendur á aldrinum 6-15 ára geti nýtt sér þann rétt að geta sótt skóla.

Björn Reynir Halldórsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica