Ung vinstri græn
Pistlar

31.8.2004 Finnur Dellsén

Pólitíkin í sumarfríi

Þetta hefur verið óvenju viðburðarríkt sumar hjá stjórnmálamönnum hér á landi. Í staðinn fyrir að þeir hverfi svo til algjörlega af sjónvarpsskjám og forsíðum dagblaðanna voru þeir aftur í brennidepli þetta sumarið. Þannig að í staðinn fyrir að sjá fréttamenn, sárþjáða af yfirstandandi gúrkutíð, teygja lopann um allt það ómerkilegasta milli himins og jarðar sáum við nú fréttamennina sitja um ákveðna ráðherra vopnaðir míkrófón og vídeókameru.

En þrátt fyrir að flestallir fréttatímar voru yfirfullir af pólitíkusum var ekkert meira um pólitík en á venjulegu gúrkutíðar-sumri. Nei, fréttastofunum tókst að halda pólitíkinni utan við þetta ? kannski finnst þeim alveg nóg um hana í þá mánuði sem Alþingi er starfandi.

En væri ekki eðlilegt ? og jafnvel alveg nauðsynlegt - að fréttastofurnar notuðu gúrkutíðina sína í að fjalla ítarlega um raunverulega pólitík, og gætu jafnvel rannsakað einhver mál sem gleymdust þegar aðrar fréttir skyggðu á það. Eru fréttastofurnar ekki sífellt að kvarta undan því að hafa ekki nægilegan tíma til að skoða öll mál ofan í kjölinn?

Kannski er þetta bara spurning um framboð og eftirspurn. Kannski er eftirspurnin eftir raunverulegri pólitík engin þegar fólk ætlar sér að vera í sumarfríi og slaka á. Kannski er fólk ekki bara sjálft að taka sér frí úr vinnu til að skreppa út á land ? kannski er það líka að senda heilabúið eins og það leggur sig í nokkurra vikna aðgerðarleysi til að búa sig undir erfiðan vetur.

En hvernig sem það er þá er kominn tími til að taka upp úr töskunum, því sumarfríið er senn á enda.

Finnur Dellsén

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica