Ung vinstri græn
Pistlar

24.8.2004 Steinunn Þóra Árnadóttir

Sumarið er tíminn...

Sumarið er tíminn sem flestir reyna að njóta til fullnustu meðan það varir. Sumarið er tíminn þar sem teknar eru ákvarðanir um það hvernig heppilegast sé að eyða fríinu. Sumarið er nefninlega tíminn þar sem flestir fara í sumarfrí.

Sjúkdómar er þó flestir þannig í eðli sínu að þeir fara ekkert frekar í frí á sumrin en aðra hluta ársins. Þó að sjúklinginn sjálfan og aðstandendur hans blóðlangi að eyða þó ekki væri nema einni áhyggjulausri viku í sumarbústað í Hvalfirðinum er því miður frekar ólíklegt að sjúkdómurinn fáist til að fara í frí. Og það er alveg rosalega erfitt að rífast við sjúkdóma. Venjuleg rök duga engan veginn á þá.

Þetta veit allt sæmilega skynsamt fólk. Það veit líka að þessi hegðun sjúkdóma er ekki líkleg til að breytast á milli ára. Það getur því ekki annað en komið öllu sæmilega skynsömu fólki á óvart að þau vandamál sem því fylgja að sjúkdómar fari ekki í sumarfrí skuli koma upp ár eftir ár.

Sumar eftir sumar koma fréttir um það að geðsjúkir eigi í vanda vegna skorts á úrræðum til að bregðast við sjúkdómum þeirra. Og allt virðist þetta stafa af því að heilbrigðisyfirvöld virðast ekki geta skilið þá einföldu staðreynd að fólk fer í sumarfrí en sjúkdómar ekki. Ár eftir ár vantar úrræði fyrir geðsjúka vegna þess að yfirvöld telja ákjósanlegt að spara peninga með því að loka stofnunum meðan starfsfólkið er í sumarfríi.

Eins og Haukur Valdimarsson, aðstoðarlandlæknir, bendir réttilega á í Fréttablaðinu í dag, þarf heilbrigðisstarfsfólk að fá sitt sumarleyfi. En hvenær í ósköpunum ætla stjórnvöld að opna augun fyrir því að þá þarf að ráða fleira fólk og að það verði hreinlega bara að eyða meiri peningum í þann málaflokk sem á áð tryggja öllum þegnum landsins mannsæmandi heilbrigðisþjónustu?

Fræg er gamansagan af bóndanum sem ekkert botnaði í því að lömbin hans virtust aldrei ætla að læra að rata leiðina í sláturhúsið samt færi hann með þau þangað á hverju einasta hausti! Því miður virðist undrun ráðamanna vera jafn einlæg á hverju einasta sumri þegar fregnir berast af afleiðingum sumarlokana. Að öllu óbreyttu megum við því eiga von á að sagan endurtaki sig sumarið 2004 ? nema helvítis sjúkdómarnir fáist þá loksins til að skella sér í orlof?

Steinunn Þóra Árnadóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica