Pistlar
Hamingjuna eða lífið
Allir vita að Íslendingar eru duglegasta þjóð í heimi. Sérstaklega ef miðað er við Suður-Evrópubúa, Araba eða aðra hryðjuverkamenn, en þau letidýr vinna næstum því ekki neitt, taka sér margra klukkutíma hádegishlé og hanga í sumarleyfum svo mánuðum skiptir. Börn þeirra eru líka aldrei í skólanum heldur bara í endalausum fríum sem þau nýta aldrei í að safna sér inn peningum og öðrum nauðsynjavörum. Íslendingar aftur á móti vinna fleiri klukkutíma á viku en þekkist á flestum stöðum í heiminum og íslensk skólabörn fá aldrei frí sem þau nýta ekki í að vinna sér inn nokkra aura.
Anna Tryggvadóttir
