Framtíð íslenskra háskóla
Hvað hefur gerst í málefnum háskólastigsins á Íslandi undanfarin ár? Jú, margt hefur gerst en eigi að síður er því haldið fram í nýlegri skýrslu Ríkisendurskoðunar um háskólastigið að þar vanti skýr markmið og stefnu; töluleg markmið, tímasetningar og ákvarðanir um hvort hér eigi að vera margir litlir skólar eða fáir og stórir skólar. Ýmsir hafa rætt þessa skýrslu; ýmist til að kalla hana áfellisdóm yfir stefnu ríkisstjórnarinnar eða til að halda skýrslunni á lofti sem einmitt sérstökum meðmælum með stefnu ríkisstjórnarinnar. Reyndar mætti draga þá ályktun að margir stjórnmálamenn væru menntaðir bókmenntafræðingar miðað við þann fjölda túlkana sem alltaf kemur upp í kringum skýrslur sem þessa.
