Ung vinstri græn
Pistlar

20.7.2004 Dögg Proppé Hugosdóttir

Ísland vs. reglugerðafarganið - Áfram Ísland

Nýverið birtist listi yfir þá sem standa sig best í því að taka upp reglugerðir ESB. Íslendingar verða, því miður, að taka upp fjölda reglugerða vegna EES samkomulagsins. Af einhverjum ástæðum er listanum stillt upp með þeim hætti að sá sem er í fyrsta sæti er víst bestur. Umhugsunarvert er hvort það teljist gott að taka upp margar af hinum undarlegu reglugerðum sem koma frá skriffinskubákninu í Brussel. Lengi má hlæja að reglugerðum um sveigju banana, að klippingar verða að kosta það sama fyrir bæði kyn og einnig að enn hefur ekki tekist að þýða allar reglugerðirnar, enda ná þær um 85.000 síðum.

Dögg Proppé Hugosdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica