Pistlar
Af gjám og holum
Fyrr í vetur rifust menn um það hver væri málefnalegur og hver ekki. Núna er aðalsportið að tala um gjár - djúpar gjár. Flestir virðast vera sammála um að einhversstaðar sé gjá. Mönnum ber hinsvegar ekki saman um það hvar gjáin eða gjárnar séu, milli hverra og hversu margar. Forseti vor reið auðvitað á vaðið í þessari umræðu. Sagði að gjá hefði myndast milli þings (ríkisstjórnar) og þjóðar og hóf þá leiðangur sem enn sér ekki fyrir endan á. Eftir forsetakosningarnar steig forsætisráðherra fram á sviðið og túlkaði úrslit þeirra á þann hátt að það hefði myndast djúpstæð gjá á milli forsetans og þjóðarinnar.
Elías Jón Guðjónsson
