Ung vinstri græn
Pistlar

3.7.2004 Freyr Rögnvaldsson

Hvað er svona erfitt að skilja?

Ríkisstjórnarflokkarnir hafa undanfarna daga barist um á hæl og hnakka við að berja saman lög sem taka til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fara á fram vegna synjunnar forseta Íslands á fjölmiðlalögunum. Það er reyndar stórmerkilegt að þetta skuli vera jafn mikið vandamál og raun virðist vera. Fyrir því eru einkum tvær ástæður. Sú fyrri er sú að nú hafa Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn haft rúmlega mánuð til að þess að setja saman þetta frumvarp til laga og þætti nú sumum nóg um. Seinni ástæðan er enn hlálegri en hún er sú að það er í raun og veru ekki nokkur skapaður hlutur sem þarf að gera.

Freyr Rögnvaldsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica