Ung vinstri græn
Pistlar

2.7.2004 Anna Tryggvadóttir

Ný kerfi gegn einkabílismanum

Allir eru sammála um að góðar almenningssamgöngur eru góð pæling fyrir allar borgir. Fólk fer til útlanda og hættir ekki að dásama frábæru neðanjarðarlestirnar sem koma manni borgarhluta á milli á örskotstundu. Þetta sama fólk sem stígur aldrei fæti inn í farartæki til almenningssamganga á kvartar oft í sömu andrá undan Strætó bs. og þeim hörmungum sem það fyrirtæki stýrir. Strætóar á Íslandi koma svo sjaldan og illskipulega að það er varla hægt að stóla á að þeir komi yfir höfuð, hvað þá að nota þegar maður er að fara í stærri ferðalög í borginni eins og á milli úthverfa. Svo er líka svo dýrt í strætó að það kostar næstum því minna að fara í leigubíl.

Anna Tryggvadóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica