Ung vinstri græn
Pistlar

8.1.2004 Gunnar Örn Heimisson

Howard Dean: Von friðarsinna

Nú fer að líða að prófkjörum bandaríska Demókrataflokksins þar sem kjörinn verður andstæðingur George W. Bush í forsetakosningunum sem fara fram síðar á þessu ári. Fyrsta prófkjörið verður í Iowa og verður þann 19. janúar. Mikil, hörð og umfram allt dýr keppni um tilnefninguna hefur nú staðið síðan í haust og mörgum að óvörum er lang líklegast (og nær öruggt) að Howard Dean hljóti hnossið. Dean er fyrrum fylkisstjóri í Vermont og er eins konar „maður fólksins“ þ.e.a.s. hann hefur ekki úr jafn miklum fjármunum að spila og hinir frambjóðendurnir og er ekki afkomandi skrilljarðamæringa, frekar venjulegur gaur. Samt fylgir hann vespumynstrinu fræga og er útskrifaður læknir frá Yale.

Gunnar Örn Heimisson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica