Ung vinstri græn
Pistlar

7.1.2004 Freyr Rögnvaldsson

Að vera samkvæmur sjálfum sér

Í aðdraganda síðustu kosninga stóð val kjósenda milli andstæðra póla í íslenskum stjórnmálum. Annars vegar var um að ræða að styðja sitjandi ríkisstjórnarflokka Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem í samstarfi sínu höfðu markað sér stöðu sem einhver hægrisinnaðasta markaðshyggjustjórn sem saga íslenskrar pólitíkur hefur kynnst. Hins vegar áttu kjósendur kost á því að fylkja sér að baki stjórnarandstöðuflokkunum sem höfðu gagnrýnt þá gegndarlausu markaðshyggju, einstaklingshyggju og ómanneskjulegu aðför að þeim hópum þjóðfélagsins sem minnst máttu sín semviðhöfð var í stjórnartíð áðurnefndrar ríkisstjórnar. Forystumenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs lögðu mikla áherslu á að sýna kjósendum að stjórnarandstaðan væri raunhæfur valkostur gegn sitjandi ríkisstjórn. Forystumenn Samfylkingarinnar með valdaglýju í augunum vildu hins vegar ekki sammælast Vinstri - grænum og Frjálslynda flokknum í því að setja dæmið upp á þennan veg. Úrslit kosninganna eru öllum kunn og félagshyggjufólk á Íslandi mátti sitja eftir með sárt ennið.

Freyr Rögnvaldsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica