Ung vinstri græn
Pistlar

6.1.2004 Katrín Jakobsdóttir

Hugrekki til nýrrar hugsunar

Við áramót er til siðs að staldra við og líta yfir farinn veg. Tilfinningin um þessi áramót er samt nánast sú sama og síðustu áramót og þau síðustu. Og jafnvel þau þar á undan. Á árinu 2003 breyttist fátt. Sama ríkisstjórn kvaddi árið 2003 og heilsaði því í byrjun. Sömu flokkar sitja við völd nú og undanfarin átta ár og ráðherraskipan er nánast óbreytt í bili. Enda skiptir svo sem ekki öllu hver situr á hvaða stóli heldur hvaða stefnu sá eða sú fylgir. Það er semsagt til lítils að beina sjónum að árinu sem leið og kannski nær að nota tækifærið og horfa til framtíðar.

Katrín Jakobsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica