Hversu há eru há laun?
Forysta ASÍ hefur sofið af sér ýmsar veigamiklar breytingar á íslensku þjóðfélagi er varða kjör almennings. Hún var til að mynda í klappliði ríkisstjórnarinnar vegna Kárahnjúkavirkjunar en rann síðan á rassinn þegar ljóst var að virkjunin yrði að stórum hluta mönnuð af erlendu verkafólki og stærsta félagslega undirboð Íslandssögunnar varð að veruleika. Einnig hafa legið í loftinu breytingar á grundvallarþjónustu samfélagsins en það hefur ekki vakið athygli verkalýðsforingjanna. Má í þessu samhengi benda á hugmyndir um markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins, vatnsins og raforkunnar. Allt er þetta hluti af stoðkerfi samfélagsins sem verkalýðshreyfingin tók þátt í að berjast fyrir og byggja upp á sínum tíma en þessi málefni virðast eiga erfitt með að ná eyrum forystunnar nú. Hverju sætir!
