Pistlar
Morgunblaðið og mannréttindi
Í tvídálka leiðara Morgunblaðsins 20. mars á þessu ári voru færð rök fyrir stuðningi Íslands við árásarstríð Bandaríkjanna á Írak. Höfuðröksemd leiðarahöfundarins er sú að Bandaríkjamenn séu bandamenn okkar og hafi stutt okkur í gegnum tíðina. Því renni okkur blóðið til skyldunnar þegar þeir fara í herleiðangra í fjarlægu landi. Er þessi skoðun í samræmi við kennisetningu Bandaríkjaforseta um að annaðhvort séu menn stuðningsmenn Bandaríkjanna eða andstæðingar þeirra?
Huginn Freyr Þorsteinsson
