Pistlar
„Að safna auð, með augun rauð, er aðra brauðið vantar“
Íslendingar eru fljótir að gleyma. Þetta er viðtekin staðreynd þegar kemur að stjórnmálum. Fyrir kosningarnar síðustu gleymdust ýmsar staðreyndir, t.d. öryrkjadómurinn, að Ísland studdi ólöglegar hefndarárásir á sjálfstæð ríki, að Framsóknarflokkurinn var búinn að sitja í stjórn en ekki stjórnarandstöðu síðustu tvö kjörtímabil og fleira mætti tína til. Í það minnsta virðist þetta vera staðreynd miðað við úrslit kosningana. En nú er svo komið að kjósendur verða að hætta að gleyma.
Freyr Rögnvaldsson
