Ung vinstri græn
Pistlar

28.11.2003 Ugla Jóhanna Egilsdóttir

Kunnuglegt land?

Færeyingar hafa verið móðins í augum okkar Íslendinga í nokkra mánuði. Færeysk tónlist er allt í öllu enda gróskumikil. Færeyska hefur líka átt upp á pallborðið hjá okkur eða eigum við að segja: er ekki bara skrípaleg lengur. Hún á allavegana örugglega ekki eftir að verða táknmynd hins asnalega í næsta áramótaskaupi eins og hún hefur verið frá upphafi. En Færeyjar eru ekki bara tískubóla, þær eru líka land. Þær eru eyjar einhvers staðar norður í Atlantshafi sem hafa verið undir dönsku krúnunni í lengri tíma. Í Færeyjum býr smáþjóð sem nær ekki einni milljón íbúa og talar tungumál sem fæstir skilja. Hljómar kunnuglega, ekki satt?

Ugla Jóhanna Egilsdóttir

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica