Ung vinstri græn
Pistlar

12.11.2003

Landsfundurinn og æskan

Þriðji landsfundur Vinstri - grænna var haldinn um helgina og voru þar saman komnir um tvö hundruð vinstrisinnaðir einstaklingar til fundar. Ungt fólk var mjög áberandi og lét mikið til sín taka. Tveir stjórnarmeðlimir UVG voru kosnir í stjórn VG og er það mjög mikilvægt, bæði fyrir ungt fólk í flokknum sem og flokkinn almennt.

Í starfshóp um menntamál var margt ungt fólk sem greinilega óttaðist þá þróun sem á sér stað í menntamálum á Íslandi. Meðal annars var rætt um styttingu framhaldsskólanna, gjaldfrjálsa leikskólakennslu og skólagjöld í Háskóla Íslands. Einnig var rætt um samræmd stúdentspróf og var hópurinn sammála um að þau væru alls ekki til bóta, heldur gerðu sumar námsgreinar jafnari en aðrar.

Margir lofuðu unga fólkið, þeirra á meðal þingmennirnir okkar en aðrir bölvuðu þessari æskudýrkun. Unga fólkið í þessum flokki er nokkuð róttækt og greinilegt að það er komið til að vera. Trúmál voru einnig rædd en ekki virtust allir sammála um hvort ætti að aðskilja ríki og kirkju.

Réttlæti án landamæra var yfirskrift fundarins og bar mikið á umræðu um jafnrétti kynjanna. Karlar jafnt sem konur tóku til máls um þetta efni og voru flestir sammála um að þetta væri flokkur sem styddi jafnrétti kynjanna og beitti sér gegn kynbundnum launamismun. Tvær efnilegar konur voru kjörnar í embætti varaformanns og ritara og skipa konur helming stjórnar VG. Geri aðrir betur.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð er flokkur sem á eftir að vaxa og dafna vel, miðað við þann eldmóð sem einkenndi fundarmenn á landsfundinum. Unga fólkid á eftir að finna sig í þessum flokki og er hann augljóslega flokkur komandi kynslóða. Það er því er morgunljóst að steingerðir bolsévikar eru ekki einkenni flokksins. VG er flokkur hugsjónamanna, flokkur jafnréttis. VG er framtíðin.

Dagur Snær Sævarsson

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica