Hvers vegna er ég vinstri græn?
Um helgina var Landsfundur VG haldinn á Hótel Örk í Hveragerði. Hann gekk vel í alla staði og ánægjulegt hversu mikið bar á ungu fólki. Fundurinn hófst á föstudaginn og fyrir ávarp formanns flokksins héldu tveir flokksmenn ávörp. Þau veltu fyrir sér spurningunni hvers vegna þau væru vinstri græn.
Svarið við þessari spurningu er ekki einfalt. Það er líka mjög einstaklingsbundið eftir því hver á í hlut. Eitt er víst að við horfum öll til framtíðar og viljum búa til betri heim, með jafnrétti og samhjálp að leiðarljósi. Oft er erfitt að koma slíkum hugsjónum í orð, en hér ætla ég að reyna að útskýra af hverju ég er vinstri græn.
Mér er annt um fjölbreytileika og trúi því að með því að rækta mismunandi eiginleika einstaklinga stígum við stórt skref í átt að betra samfélagi. Þennan fjölbreytileika er ekki hægt að fá nema allir eigi rétt á menntun við hæfi hvers og eins. Með því til dæmis að beina öllum framhaldsskólanemum á eina braut og gera fólki erfiðara fyrir að stunda verk- og iðnnám, sem og listnám, er dregið úr fjölbreytileika.
Í þessu sambandi tel ég einnig mikilvægt að rækta mismunandi uppruna og menningu allra einstaklinga. Ef virðing væri borin fyrir því að fólk er ekki allt eins, væri hægt að afstýra flestum ef ekki öllum stríðum heimsins. Á Íslandi eigum við að nýta þá fjölbreytni sem nýir Íslendingar koma með inn í samfélagið með því að einbeita okkur að því að gera þá að virkum meðlimum í okkar samfélagi með stuðningi í staðinn fyrir að láta þá einangrast og missa þannig af stórum tækifærum.
Fjölbreytni í náttúrunni minnkar stöðugt og mikilvægt er að sporna gegn þeirri þróun. Með því að sökkva náttúruperlum sem eiga sér enga hliðstæðu í heiminum gerum við hann fátækari. Lífríki Íslands og heimsins verður einsleitara með hverjum deginum og mikilvægt að gera sér grein fyrir þessu vandamáli sem fyrst til að hægt sé að beita sér fyrir lausnum á því.
Vegna þess hversu fáir búa á Íslandi er krefjandi verkefni að reyna að halda við og auka enn á fjölbreytileikann. Það er okkur hins vegar lífsnauðsynlegt og mér finnst VG vera eini flokkurinn sem gerir sér grein fyrir því. Í stefnu hans er gert ráð fyrir því að við erum ekki öll eins og við viljum ekki vera það. Með jafnrétti er einstaklingnum gefið frelsi til að velja þær leiðir sem henta honum best. Fyrir öllu þessu berjast vinstri grænir þingmenn á hverjum degi og þess vegna er ég vinstri græn.

Skrifa athugasemd