Réttlæti fyrir alla, alls staðar - án landamæra
Í dag hefst landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og er yfirskrift hans Réttlæti án landamæra. Leggja má tvennan skilning í þessa yfirskrift, annars vegar að okkar markmið felist í landamæralausu og eðlilegu réttlæti innávið hér á landi og hins vegar að það réttlæti sem við berjumst fyrir sé ekki bara fyrir okkur heldur alla heimsbyggð, við viljum hnattvæða réttlætið.
Hér á landi viljum við aukið réttlæti fyrir þá sem minna mega sín og hafa orðið útundan í góðæri Davíðs, sígilt er að nefna jaðarhópa á borð við aldraða, öryrkja og hina margtuggnu klisju um atvinnulausu, einstæðu móðurina. Það að þessir hópar séu svona oft nefndir þegar velferðarmál ber á góma er samt ekki bara klisja heldur afleiðing þess að víða er pottur brotinn í velferðarmálum. Við viljum ráða bót á því vegna þess að við viljum réttlæti og mannsæmandi kjör fyrir alla þegna, það er grundvallaratriði í okkar pólitík.
Einnig ætlum við að beita okkur fyrir auknu réttlæti í menntamálum því að mennt er máttur, á því leikur enginn vafi. Mikilvægt er að tryggja jafnrétti til fjölbreytts náms. Jafnrétti til náms er nefnilega ekki algjört hér á landi, því miður. Þeirri jákvæðu þróun að hér hafi fjölgað kostum á háskólanámi fylgir að þeir skólar eru flestir einkareknir og styðjast því að miklu leyti við skólagjöld sem nemendur þurfa sjálfir að greiða. Það er ekki jafnrétti til náms að námfúst fólk þurfi jafnvel að neita sér um að sækja það nám sem það helst vill vegna auraleysis, það er mismunun á grundvelli efnahags sem við viljum ekki sjá.
Og talandi um að hnattvæða réttlætið. Við viljum og ætlum að beita okkur fyrir því að þjóðir heims fái allar að njóta mannréttinda og mannsæmandi kjara. Við ætlum ekki að sætta okkur við það að hinir ríku verði sífellt ríkari á kostnað þriðja heims ríkja, við ætlum ekki að sætta okkur við það að Bandaríkjastjórn og skósveinar hennar fái að vaða yfir þjóðir í trássi við alþjóðalög án afleiðinga og við ætlum heldur ekki að sætta okkur við það að Íslendingar verði þekktir fyrir að taka fullan þátt í arðráni þriðja heimsins og tíma varla þrjátíu silfurpeningum í þróunarhjálp.
Heimurinn verður kannski aldrei alveg réttlátur en við ætlum ekki að láta á okkur standa. Við ætlum að halda áfram að berjast fyrir réttlæti án landamæra, hér á landi sem og annars staðar. Gleðilegan landsfund.
