Leyfum Rammagerðinni að ríða á vaðið
Sú var tíðin að jólaundirbúningurinn hófst, að því er mörgum fannst allt of snemma, með því að jólasveinar birtust í gluggum Rammagerðarinnar. Eftir á að hyggja var það þó kannski ekki svo slæmt. Þessir jólasveinar voru nefnilega til þess gerðir að vekja kátínu og gleði meðal vegfarenda og koma þeim þannig í sannkallað jólaskap.
Í seinni tíð hefur hins vegar annar boðberi jólanna náð að skjóta rafknúnu Rammagerðarjólasveinunum ref fyrir rass. Þar er um að ræða jólasafnanir líknarfélaga sem safna fé til að létta undir með bágstöddum um hátíðarnar. Að þessu sinni var það Mæðrastyrksnefnd sem reið á vaðið með geisladiskasölu. Mæðrastyrksnefnd virðist þvímiður vera að búa sig undir enn eitt metárið hvað varðar fjölda einstaklinga og fjölskyldna sem ekki hafa efni á því að gera sér dagamun um jólin.
Mæðrastyrksnefnd vinnur ásamt fleiri góðgerðarsamtökum gríðalega þarft verk við að safna mat og gjöfum frá fyrirtækjum og einstaklingum til þess að hjálpa megi þeim sem búa við hvað bágust kjör. Öll sú mikla vinna sem góðgerðarsamtök inna af hendi á þessum árstíma verður þó aldrei annað en plástur á þau sár sem hvarvetna blasa við í samfélaginu. Sár sem verða til vegna þess að hjá einni ríkustu þjóð í heimi eru lægstu launin svo lág og velferðarkerfið svo gloppótt að um hver jól komast fjölmargir landsmenn í þrot og neyðast til að leita sér fjárstuðnings, með því særða stolti sem því fylgir.
Á sama hátt og félagshyggjufólk hlýtur að óska þess að líknarfélögum af þessu tagi gangi vel í starfi sínu og megni að safna sem hæstum fjármunum, verðum við að minna okkur á að hér er einungis um plásturslausnir að ræða. Markmið okkar er ekki að byggja samfélag þar sem hvert haust er keppst við að fylla sjóði Mæðrastyrksnefndar, heldur þjóðfélag þar sem neyðinni hefur verið útrýmt og landsmenn geta fundið gjafmildi sinni annan farveg.
Gerum kröfu til velferðarsamfélags þar sem jólaundirbúningurinn hefst ekki með ölmususöfnunum í lok október og gerum rafmagnsdúkkurnar í Rammagerðinni aftur að fyrsta boðbera jólanna.
