Ung vinstri græn
Pistlar

27.10.2003 Finnur Dellsén

Auðvitað er eitthvað að!

Í grein Illuga Jökulssonar í Fréttablaðinu sl. laugardag spyr höfundur hvort starfskraftar minnihlutans fái að njóta sín sem skyldi á Alþingi og sveitarstjórnum víðsvegar um landið. Bent var á að þeir þingmenn (eða sveitarstjórnarmenn) sem eru í minnihluta eftir kosningar væru fullir áhuga og gæddir ýmsum hæfileikum til að stjórna, þótt svo hafi viljað til að flokkur þeirra sitji ekki í meirihluta. Eðlilegt er að spyrja hvort það séu ekki mistök að fórna starfskröftum þeirra af þeirri ástæðu einni að flokkar minnihlutans fengu nokkrum prósentum færri atkvæði.

Í lok pistilsins spyr Illugi hvort að það sé „þá ekki bara eitthvað að flokkakerfinu“? Auðvitað er eitthvað að flokkakerfinu okkar, og gallar þess afhjúpast oftar og oftar eftir því sem stjórnarflokkarnir eru lengur við völd.

Hvernig getur það til dæmis talist heilbrigt hvernig þingmenn Framsóknarflokksins skipta nefndarstörfum á milli þeirra 6 þingmanna sem ekki eru ráðherrar? Sem dæmi er Kristinn H. Gunnarsson varaformaður í þremur nefndum og formaður í einni. Jónína Bjartmarz er varaformaður í tveimur, formaður í einni ásamt því að vera 2. varaforseti Alþingis og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.

Geta Íslendingar verið vissir um að eitthvað annað en hagsmunir almennings í landinu ráði þarna ferðinni. Er flokksrígurinn orðinn svo yfirgengilegur að það hindri ríkisstjórnina í því að velja hæfasta og áhugasamasta fólkið til að vinna fyrir sig stjórnunarstörf?

Ekki er hægt að sjá annað en að slíkt samstarf meiri- og minnihlutans myndi hafa í för með sér heilbrigða gagnrýni sem ekki væri hægt að hunsa og þegja í hel. Með slíkri samvinnu væri ef til vill hægt að nálgast það að Alþingi setji lög sem endurspegla einhvers konar þversnið af skoðunum almennings. Stjórnmál ættu nefnilega ekki bara að snúast um það hvaða flokkar komast í meirihluta eftir kosningar, heldur um vilja fólksins í landinu. Auðvitað. Er ekki kominn tími til að láta í okkur heyra?

Finnur Dellsén

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica