Hjá vondu fólki
Eftir 11. september 2001 hefur ríkisstjórn Bandaríkjanna verið í krossferð gegn meintum hryðjuverkamönnum og þjóðum. Á þessum rúmlega tveimur árum hafa verið háð tvö stríð í skjóli þess að verið sé að berjast gegn hryðjuverkum. Bandaríkjastjórn og skósveinar þeirra hafa farið með logandi sverði og steypt vondu fólki á borð við talíbanastjórnina í Afghanistan og hinn mjög svo illa Saddam Hussein af stóli og eru flestir sammála um að gott hafi verið að skipta þessum mönnum út.
Hins vegar hefur margur spurt sig hvort að það sé með nokkru móti hægt að færa rök fyrir því að tilgangurinn hafi helgað meðalið þegar aðgerðirnar hafa kostað fjölmörg saklaus mannslíf. Aðrir bíða hins vegar spenntir eftir því að sjá hvaða lönd og þjóðir eru næst á gátlista Bush og félaga, hverjir séu verstir.
Sumir væru ef til vill til í að sjá Ísraelstjórn steypt af stóli, en sú stjórn hefur undanfarin misseri verið manna duglegust við að drepa og kúga, og það minnimáttar, með síendurteknum árásum á flóttamannabúðir Palestínumanna. Aðrir væru þó jafnvel frekar til í að næst á listanum væru palestínsk öfgasamtök sem stofna lífi og limum ísraelskra landtökumanna í hættu dag eftir dag með sjálfsmorðsárásum.
En hverjir eru verstir? Hvaða stjórn eða samtök drepa flesta og eiga stærstu og flestu og hættulegustu gereyðingarvopnin og eru þar af leiðandi (a.m.k. samkvæmt skilgreiningu Bandaríkjastjórnar) hættulegustu hryðjuverkamennirnir? Það er nefnilega ekki Íran eða Norður-Kórea eða Hamas-samtökin, heldur Bandaríkjastjórn sjálf sem leyfir sér óhikað að fara í ólögleg stríð með ólöglegum vopnum.
Bandaríkjastjórn gæti með pennann einn að vopni rutt hættulegustu harðstjórn heims í burtu með því að segja af sér eins og hún leggur sig. Öll vitum við hins vegar að það er ekkert að fara að gerast, því að raunverulegur tilgangur þessara manna er fjarri því að gera heiminn að betri stað. Þeirra eigin pólitísku og fjárhagslegu hagsmunir er hin raunverulega ástæða fyrir stríði og kúgun. Ótti við hryðjuverk er einungis skálkaskjól og afsökun sem þeir skýla sér á bak við og um leið þeirra hættulegasta vopn. Þeir eru nefnilega langt frá því að vera barnanna bestir.
